10mars

Danmörk

Langaði bara að deila með ykkur að ég fer til Kaupmannahafnar 31. mars og verð í viku.. ég er bara að skella mér ein til útlanda í viku og ætla bara að skoða og gera það sem mér langar til.. geggjað spennt..

skrifa meira þegar ég nenni..

e.s. fyrir ykkur sem skilja ekki afhverju ég kaus að verða kennari, það er svoooo þess virði þegar vel gengur. ;)

love you longt time
10. mars 2007 klukkan 01:42
Anna Magnea Valdimarsdóttir
21 athugasemd
07febrúar

Rófubeinsbrotin kennari..

Já mér tókst að rófubeinsbrjóta mig síðasta laugardag.. flaug svo glæsilega á rassinn og þar sem þetta er nú ekki lítill rass sem ég á þá bjóst ég nú ekki við því að brjóta á mér rófubeinið en mér tókst það jeiiiii... hehe.. þetta er búin að vera leiðinlegasta vika sem ég hef upplifað.. óendandlegur sársauki við allar hreyfingar og geri ekkert nema liggja heima og láta mér leiðast.. horfa á gjörsamlega heilalausa þætti á MTV eins og "my supersweet sixteen" "date my mom" "made" "laguna beach" og fleira í þeim dúr svo er pabbi búinn að vera að parketleggja uppi og þurfti að taka netið út á meðan þannig ég hef ekki einusinni geta hangið í tölvunni.. ætla að reyna að fara í vinnuna á morgun.. sjáum til hvernig það verður :s

en já ég er semsagt byrjuð að kenna :D það er æðislegt er búin að vera að kenna leiklist í 1-5 bekk sem á kannski ekki alveg við mig en hefur verið áhugavert en í næstu viku byrja ég að kenna matreiðslu og saumar sem er meira það sem ég vil fá að kenna :) ég er ótrúlega spennt yfir að byrja sérstaklega að byrja að kenna matreiðsluna..

ég ætla að reyna að vera duglegri við að blogga og láta heira í mér :)

p.s. Katrín ég er að vinna í þessu með myndirnar..
07. febrúar 2007 klukkan 14:36
Anna Magnea Valdimarsdóttir
7 athugasemdir
28desember

Komin heim og jólin búin..

Skólinn kláraðist í miklu táraflóði.. við grétum öll í kór síðasta daginn í Húsó.. ég ætlaði ekki að gráta en þeir sem þekkja mig hefðu ekki trúað því í sekúndu að ég kæmist í gegnum svona móment án þess að gráta.. vá hvað mér var farið að þykja vænt um krakkana þarna og ég er strax að farast úr söknuði og ég er bara að fara að húka hérna á skagaströnd þar sem ég þekki engann og ekkert gerist..

Jólin í ár voru yndisleg, jólatréið okkar náði upp í loft það er algjör snilld :D ég fékk fullt af góðum gjöfum en það sem stendur upp úr er geggjaða sjónvarpsborðið sem ég fékk frá mömmu og pabba og útsaumsbók frá systkinum mínum, snilldar bók :)

Binni kom í heimsókn í gær með þrem vinum sínum, ætluðum að skella okkur í kántrý en þeim fannst það eitthvað of slappt þannig við skelltum okkur á krókinn á Kaffi krók (ekki jafn gott og Kaffi ak en sleppur) þar var mikið dansað.. þetta var æðislegt kvöld og það var svo gamana ð hitta Binna.. get ekki beðið eftir að hitta fleiri úr Húsó þegar ég fer suður..

Ég fer suður á morgun og þar mun Magga frænka taka á móti mér og við munum djamma framm á morgun, hún verður nefnilega ekki á landinu um áramótin þannig við ætlum að djamma áramóta-djammið annaðkvöld.. hjá mér verður þetta samt bara upphitun þar sem ég ætla mér að djamma allsvakalega um áramótin.. verð í mat hjá Dúdda frænda (bróður mömmu) þar sem ég hitti Sölva sem ég hef ekki hitt í tvö ár.. það verður æðislegt..

vona að allir eigi eftir að skemmta sér vel um áramótin :)

love you long time ;)

p.s. jólakortin klikkuðu hjá mér í ár þannig ekki halda að ég hafi gleymt að senda þér jólakort.. það fékk enginn jólakort..
28. desember 2006 klukkan 07:03
Anna Magnea Valdimarsdóttir
11 athugasemdir
10desember

Skemmtileg vika framundan..

Þá eru prófin búin.. gékk bara mjög vel í flestum, hef mestar áhyggjur af bóklegri matreiðslu :s vona bara að ég hafi ekki alveg klúðrað því :þ Fór með Guðrúnu, Árna og Sunnu á Hetjuna til að horfa á X-factor í gær, það var kósí aðeins að fagna því að prófin séu búin ;D

Jæja þá fer síðasta vikan mín í Húsó að byrja.. ég trúi því ekki að þetta er allt að verða búið. Þetta er búinn að vera æðislegur tími og ég lærði svooo mikið hérna :) Get ekki beðið eftir því að koma heim og knúsa litlu systur mínar, bróðir minn, pabba minn og MÖMMU.. ég sakna þeirra allra rosalega mikið.. það verður líka spennandi að hitta Dagný en hún er kærasta bróður míns og ætlar að koma í heimsókn í nokkra daga, það ætti að verða áhugavert að hafa aukamanneskju inni á heimilinu..

Það verður æðislegt að byrja á öllum smákökubakstrinum með litlu skvísunum mínum..

En já næsta vika verður ja.. hva skal segja.. áhugaverð.. :þ Það verða semsagt lokaþrif í húsinu og við munum vera ALLA vikuna að þrífa.. Hljómar geggjað gaman get ekki byrjað :D (svona fyrir þá sem þekkja ekki kaldhæðni þá var þetta kaldhæðni) það verður spes að eiða heillri viku frá 8-16 alla daga í heila viku.. vá hvað ég á ekki eftir að nenna að taka þátt í jólaþrifunum heima.. Lilja og Katla þið sjáið bara um minn part líka ;þ

En ég ætla að halda áfram að prjóna :D það er svo gaman :)

love you long time
10. desember 2006 klukkan 05:43
Anna Magnea Valdimarsdóttir
11 athugasemdir
26nóvember

Leiđist...

Ég var að eignast nýja frænku :) bróðir pabba eignaðist stelpu 22.11 og ég var að sjá myndir af henni í dag.. algjör dúlla, langar svo að fara suður og knúsa hana.. langar líka á akureyri og knúsa Friðgeir Bjarna og Þorgeir Árna en það eru litlu guttarnir hennar Gunnhildar.. Fullt af nýjum börnum í kringum mig, hefði ekkert á móti því að koma með eitt sjálf ;)

Vá hvað mér leiðist samt núna.. klukkan er tólf mínútur yfir tvö og ég nenni engann veginn að fara að sofa.. er með þvott í þvottavélinni sem þarf að fara í þurkarann og nenni einganveginn að labba niður og gera það enda er hryllingur að fara ein niður í kjallara :s gæti gert útsaum en held að það sé ekki sniðugt þegar maður er þreittur.. búin að horfa á alla þættina í tölvunni minni :( langar að fara heim..

Það er bara vika eftir í kennslu í skólanum og það er saumavika hjá mér sem er engastund að líða.. síðan fer ég í próf í viku og svo eru húsþrif í viku og svo er skólinn búinn.. ekki misskilja mig það er búið að vera yndislegt í þessum skóla og ég er búin að kynnast krökkum sem ég á eftir að þekkja það sem eftir er en ég er samt ekki búin að hitta litlusystur mínar neitt af ráði síðan ég kom hingað né mömmu mína og ég sakna þeirra :( það er nú líka soldið erfitt að vera með sama fólkinu 24/7 þó svo að sumir séu auðveldari og skemmtilegri í umgengni en aðrir.. Ég á samt eftir að sakna Sunnu geggjað mikið.. það er æðislegt að vera með henni í herbergi manni verkjar stundum í magann af hlátri :D:D

Ég held ég ætli á augnabliks bömmer.. Hversu ömurlegt er það þegar yngsta systir manns(10ára) og litli bróðir manns(18ára) eru á föstu!! og ekki ég :( okei bömmer búinn.. :þ
Á meðan þau eru ánægð er ég ánægð.. eða þúst reyni það þangað til ég eignast kæró ;)


Love you long time :)
26. nóvember 2006 klukkan 08:20
Anna Magnea Valdimarsdóttir
10 athugasemdir
17nóvember

Nenni ekki ađ blogga..

Það hefur bara eitt skemmtilegt gerst síðan síðast.. Gunnhildur er búin að eignast tvíbura :) til hamingju ástin mín.. En þar sem ég nenni ekki að blogga þá ætla ég að setja þetta inn og vona að einhverjir svari :)

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst?

4. Ertu hrifin af mér?

5. Langar þér að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíma langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
17. nóvember 2006 klukkan 03:10
Anna Magnea Valdimarsdóttir
7 athugasemdir
07október

Bloggleysi..

Jæja þá er loksins komið að nýrri færslu hjá mér.. það er búið að vera svo mikið að gera og tölvan búin að vera í einhverju fokki þannig ég hef ekki getað sett færslu inn en það er margt búið að gerast..

Fór til Akureyrar með Sunnu herbergisfélaganum mínum og við skemmtum okkur ótrúlega vel.. á föstudeginum fórum við á kaffi Ak (að sjálfsögðu) og á laugardeginum var innflutningspartý hjá Margréti og Gísla (og Kleó litlu ótrúlega sætu kisunni þeirra) þetta var æðislegt.. Gísli tók upp gítarinn að sjálfsögðu og þetta var klassíst gítarpartý MA-style :) síðan var stefnan tekin á bæinn þar sem var farið á kaffi Ak(hvert annað..) og reyndar aðeins kíkt á amor en ég meina það er ekkert á við kaffi Ak.. þar var mikið dansað og alveg æðislegt..

Það er orðið staðfest að útskriftarveislan mín verður haldin 14. október og ef ég er ekki búin að bjóða þér þá endilega hringdu í mig og ég verð geggjað sorry yfir að hafa gleymt þér og mun mjög líklega bjóða þér (nema náttla ég vilji ekki hafa þig þarna) :þ en ég er ótrúlega spennt og hlakka mikið til að hitta alla fjölskylduna að utanskyldu Mána, Sölva og Möggu.. it won't be the same without you guys :(

Að austan er nú samt bara allt gott að frétta.. búnin með fyrsta stykkið í útsaum og á bara smá eftir af útsaum á barnanáttkjólinn og þá er hann reddy(búin að sauma hann allann) og fer að byrja að sauma buxur á mig.. jeiii... skelli inn myndum af þessu þegar ég er búin að gefa mömmu fyrsta stykkið því að sjálfsögðu verður hún að fá að vera fyrst til að sjá þetta..

Já og síðast en ekki síst.. haldið ekki að ég hafi bara skellt mér á hárgreiðslustofu og fengið mér varanlegt :þ á engar myndir af mér en ég verð nú að taka nokkrar og setja inn svo þið getið séð það.. mér finnst það allavega mjög flott..


læt þetta nægja í bili..
þangað til næst :)
07. október 2006 klukkan 00:53
Anna Magnea Valdimarsdóttir
15 athugasemdir
17september

Peysan mín..

Búin með peysuna mína.. það eru komnar myndir inn af henni :)
17. september 2006 klukkan 01:31
Anna Magnea Valdimarsdóttir
10 athugasemdir
12september

Ekki búin ađ blogga lengi..

Sorry hvað það er langt síðan síðast bara búið að vera mikið að gera hjá mér.. skóli alla daga til fjögur og síðan læra og svo prjóna meira :) er að verða búin með seinni ermina á lopapeysunni minni :)

Vá hvað ég er samt farin að sakna kaffi Ak. við eyddum mörgum stundum þarna og það er svo skrítið að vera ekki með sama fólkinu og gera sömu hlutina. Ég meina ekki misskilja það er æði að vera hérna en ég sakna samt allra á Ak og sem voru þar..  Miss you!

Fórum að tína hrútaber í gær.. vissi ekki að það væru til ber sem heita hrútaber en þau eru mjög góð og vaxa bara i skóglendi og það á að vera mjög gott að gera sultu og saft úr þeim hlakka til að smakka það :) þessa vikuna er ég í eldhúsinu og það er mjög fínnt alltaf gaman að læra að elda nýjan mat og vitið menn ég lærði að gera sósu í dag og mér fannst hún góð.. trúið þið því ég fékk mér sósu með kjötinu í dag, held að það sé partur af því að þroskast - byrja að borða sósur.. Ég held samt að mér finnist skemmtilegra að sauma eða æji ég veit það ekki - bara bæði betra ;) búin að læra að sauma hnappagöt (ekki mjög flókið) og skyrtu saum og tvöfaldann fald og skáband og svona ýmislegt..

Það er nú smá dramatík í gangi hérna en ekker alvarleg held ég.. held að það sé nú ekki við öðru að búast þegar 21 stelpur búa saman og það er nú eðlilegt að sumum líki betur við aðra en flestir eru nú þokkalegir :)

þangað til næst (veit ekki hvenær það verður :s)
12. september 2006 klukkan 21:41
Anna Magnea Valdimarsdóttir
9 athugasemdir
02september

Byrjuđ ađ prjóna :)

Muniði þegar maður var í grunnskóla og var í leikfimi og maður kraup niður á hnén og manneskjan fyrir aftan hoppaði klofvega yfir mann.. okey sjáið nú fyrir ykkur mig (ég er 170 á hæð) og ég stóð upprétt og Binni (strákur sem er hérna) stökk svona yfir mig og ég er ekki að grínast.. þetta var geggjað fyndið ég bjóst við því að hann myndi bara klessa á mig eða eitthvað en nei gaurinn bara fór alveg yfir mig..

Ég fór í fyrsta tímann í valáfanganum mínum í gær og það er áfangi þar sem við lærum að taka upp snið og breyta þeim eins og við viljum, við gerum buxur, eitthvað með ermum og síðan pils.. við byrjum á barnaskyrtu sem ég ákvað að breyta í náttkjól og eigum að gera útsaums mynd á hana og ég valdi geggjað sæta bangsa mynd.. get ekki beðið eftir að byrja á þessu öllu saman :)

Stella og Telma.. þetta á eftir að verða magnað matarboð hjá okkur finnum bara tíma eftir áramót þegar ég verð komin suður :)

Ég byrjaði á lopapeysu í gær :) strax búin með eina dokku, geggjað dugleg :þ þessi helgi verður algjör prjónahelgi :)
02. september 2006 klukkan 15:15
Anna Magnea Valdimarsdóttir
8 athugasemdir

Ađalvalmynd

Veronica Mars

"I think we have a choice. And I think we can take a tough but survivable amount of pain now, or stay together and deal with unbearable pain later. So, I vote for the pain now. But I'm always here, if you need anything...but you never need anything."

Auglýsing

Atburđarteljari

Könnun

Hvernig á ég eftir ađ fíla ađ vera ein út í Danmörk??

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur